
Garðar Ingi Sindrason (Instagram)
Garðar Ingi Sindrason leikmaður FH sem á dögunum var kynntur sem nýr leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins, Gummersbach frá og með næsta sumri kíkti í heimsókn til Þýskalands á dögunum með frænda sínum Aroni Pálmarssyni. Gummersbach birti mynd á samfélagsmiðlum sínum af Garðari Inga ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni þjálfara Gummersbach og frænda sínum, Aroni Pálmarssyni. ,,Við erum farin að hlakka til að fá þig," segir í færslunni frá Gummersbach.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.