Áfall fyrir Dag Sigurðsson – Lykilmaður Króatíu ekki meira með
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Zvonimir Srna ((Photo by Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)

Zvonimir Srna meiddist í leik gegn Slóveníu í gærkvöldi og hefur segulómun nú staðfest að hann er með slit í aðfærsluvöðva. Þar með er Evrópumótinu lokið hjá Srna, sem er mikið áfall fyrir liðið en þessu greindi handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Dagur Sigurðsson eins og flestir vita er landsliðsþjálfari Króatíu en liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópumótsins eftir 27-25 sigur á Ungverjalandi og ljóst að Króatía vann milliriðilinn sem Ísland lék í.

Það stoppaði þó ekki Króata í að komast í undanúrslit en þeir unnu Ungverja rétt í þessu og eru komnir í undanúrslit á öðru stórmóti sínu í röð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top