Ísland (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Íslenska landsliðið er komið í undanúrslit Evrópumótsins eftir átta marka sigur á Slóveníu, 39-31 í lokaleik Íslands í milliriðli Evrópumótsins. Ísland var tveimur mörkum yfir í hálfleik 18-16. Í seinni hálfleik var Ísland hinsvegar töluvert sterkari aðilinn í leiknum og keyrði yfir Slóvenana. Markvarslan var alls ekki nægilega góð í leiknum en það dugði þó til og sigurinn var aldrei í hættu í seinni hálfleik. Elliði Snær Viðarsson var markahæsti leikmaður Íslands í leiknum með átta mörk úr níu skot og var besti leikmaður Íslands að mati Handkastsins ásamt Óðni Þór Ríkharðssyni. Gísli Þorgeir var frábær í sókninni og þá lék Janus Daði Smárason vel á báðum endum vallarins. Óðinn Þór Ríkharðsson var á eldi í hægra horninu og Ómar Ingi Magnússon spilaði frábærlega eftir erfiða byrjun í leiknum. Einkunnir Íslands má sjá hér: Björgvin Páll Gústavsson - 4 Viktor Gísli Hallgrímsson - 4 Arnar Freyr Arnarsson - 6 Bjarki Már Elísson - 6 Einar Þorsteinn Ólafsson - 6 Elliði Snær Viðarsson - 9 Gísli Þorgeir Kristjánsson - 8 Haukur Þrastarson - 6 Janus Daði Smárason - 8 Orri Freyr Þorkelsson - 6 Óðinn Þór Ríkharðsson - 9 Ómar Ingi Magnússon - 8 Teitur Örn Einarsson - Spilaði of lítið Viggó Kristjánsson - 5 Ýmir Örn Gíslason - 7 Þorsteinn Leó Gunnarsson - Spilaði ekkert 10 - Óaðfinnanleg frammistaða
9 - Frábær frammistaða
8 - Mjög góður
7 - Góður
6 - Ágætur
5 - Þokkalegur
4 - Lélegur
3 - Mjög lélegur
2 - Arfa slakur
1 - Óboðleg frammistaða

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.