Alferð Gíslason þjálfari Þýskalands (
Þýskaland og Króatía tryggðu sér sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í handbolta í kvöld sem þýðir það að Ísland á þrjá af fjórum þjálfurum í undanúrslitaleikjum Evrópumótsins í handbolta ár. Snorri Steinn Guðjónsson hafði stýrt íslenska landsliðinu inn í undanúrslitin fyrr í dag og í kvöld fóru þeir Alfreð Gíslason og Dagur Sigurðsson einnig með lið sín upp úr sínum milliriðli. Það er því aðeins danska landsliðið, af þeim liðum sem spila um verðlaun á mótinu, sem er ekki þjálfað af Íslendingi sem er magnað dæmi. Íslenskir þjálfarar hafa náð frábærum árangri í handboltanum undanfarin ár og er það að koma í ljós enn og aftur á þessu Evrópumóti. Dagur Sigurðsson er landsliðsþjálfari Króatíu og Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands. Undanúrslitin verða leikin á Föstudag og Ísland mætir annað hvort Þýskalandi eða Danmörku. 


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.