Isabelle Gullden (Savehof)
Hin 36 ára Isabelle Gulden tekur við sem þjálfari sænska liðsins, Savehof frá og með næsta sumri. Hún verður því þjálfari íslenska landsliðskonunnar, Elínar Klöru Þorkelsdóttir sem gekk í raðir Savehof í sumar frá Haukum. Isabelle Gullden er í dag aðstoðarþjálfari Savehof en hún tók við því starfi í sumar. ,,Ég er afar stolt og ánægð með að fá þetta tækifæri. Eftir eitt ár sem aðstoðarþjálfari hef ég kynnst liðinu vel og þetta er frábær hópur með mikla möguleika. Ég hlakka virkilega til næsta árs en líka til restarinnar af þessu tímabili," sagði Gullden við heimasíðu Savehof. Isabelle Gullden er uppalin í Savehof en þar hóf hún handboltaferil sinn og lék með liðinu frá 2007-2011. Hún lauk handboltaferlinum með Lugi árið 2024 en hún var þjálfarateymi sænska kvennalandsliðsins frá 2023-2024. Hún lék rúmlega 220 landsleiki fyrir sænska landsliðið og lék víða um Evrópu, í Danmörku, Rúmeníu, Frakklandi og Noregi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.