Segir eldri Dujshebaev bróðirinn búinn að semja við Gummersbach
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Talant Dujshebaev Alex Dujshebaev ((Anke Waelischmiller/SVEN SIMON / SVEN SIMON / dpa Picture-Alliance via AFP)

Spænska stórstjarnan Alex Dujshebaev hefur náð munnlegu samkomulagi við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach, samkvæmt RThandball. Heimildir RThandball herma að búist sé við því að Alex Dujshebaev skrifi undir samning við Gummersbach eftir Evrópumótið sem nú er í fullum gangi.

Alex er þar í eldlínunni með Spánverjum en Alex rennur útaf samningi við pólska stórliðið Kielce í sumar er hann hefur leikið síðustu ár. Alex er sagður gera þriggja ára samning við Gummersbach.

Ljóst er að bæði Alex og Daniel Dujshebaev yfirgefa Kielce í sumar en Alex er fæddur árið 1992 en sá yngri, Daniel er fæddur árið 1997.

Alex var lengi vel orðaður við THW Kiel en samkvæmt heimildum RThandball voru þýsku risarnir ekki tilbúnir að bjóða þriggja ára samning en Alex sóttist eftir lengri samning en Kiel voru tilbúnir að bjóða. Gummersbach voru hinsvegar tilbúnir í lengri samning fyrir þennan 33 ára Spánverja.

,,Það opnaði dyrnar fyrir Gummersbach, sem kom inn í baráttuna með góðan fjárhagslegan pakka og langtímasýn. Að lokum reyndist metnaðarfullt tilboð þeirra úrslitaþáttur, sem gerði útslagið fyrir þá að vinna kapphlaupið um spænsku stórstjörnuna og senda skýr skilaboð um mikinn metnað sinn fyrir komandi tímabil," segir í færslu RThandball.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top