
Ísland (Johan Nilsson/TT /AFP)
Í síðasta uppgjörsþætti Handkastsins eftir sigur Íslands gegn Slóveníu í vikunni var Ásbjörn Friðriksson sem var gestur í þættinum beðinn um að velja þrjá bestu leikmenn Íslands á Evrópumótinu til þessa. Íslenska landsliðið hefur leikið sjö leiki á mótinu, unnið fimm, gert eitt jafntefli og tapað einum. Það hefur skilað liðunum í undanúrslitin en Ísland leikur gegn Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í kvöld klukkan 19:30. Hér má sjá þrjá bestu leikmenn Íslands á EM að mati Ásbjarnar Friðrikssonar. Gísli Þorgeir Kristjánsson ,,Gísli Þorgeir hefur verið besti leikmaður Íslands á mótinu hingað til.” Óðinn Þór Ríkharðsson ,,Óðinn Þór hefur verið frábæra í hægra horninu og hann hefur tekið miklum framförum varnarlega, það er alveg ljóst.” Elliði Snær Viðarsson ,,Það er erfitt að gera upp á milli nokkra hvað varðar 3.sætið en mér finnst Elliði hafa vaxið í þristinum hliðin á Ými. Þá hefur hann staðið sig vel sóknarlega. Það var mikill fargi af honum létt þegar hann fór að skora úr færunum sínum.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.