Barein ((Photo by Pau BARRENA / AFP)
Barein tryggði sér loksins sigur á Asíumótinu sem lauk í gær en mótið fór fram í Kúveit. Barein sem hafði tapað fimm úrslitaleiknum á Asíumótinu vann Katar í gær eftir framlengdan leik. Leiknum lauk 24-24 en þá þurfti að grípa til framlengingar en þar höfðu Barein betur 29-26. Þjálfari liðsins er Svíinn Robert Hedin en hann tók við liðinu af Aroni Kristjánssyni. Með sigrinum hafa Barein tryggt sér þáttökurétt á Heimsmeistaramótinu 2027. Gestgjafarnir Kúveit voru í þriðja sæti en þeir unnu sigur á Japönum um bronsið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.