Endjis Kusners (Eyjólfur Garðarsson)
Í dag mættust Hörður og Valur 2 á Ísafirði í Grill 66 deild karla.
Leiktíminn var heldur óvenjulegur. Kl 12:00 á Torfnesi á Ísafirði.
Í fyrri hálfleik höfðu Harðverjar yfirhöndina. Eftir korter var staðan 11-7 fyrir þeim. Valsmenn löguðu síðan aðeins stöðuna og í hálfleik var staðan 16-14 fyrir Herði.
Í seinni hálfleik voru Harðverjar ennþá áfram með yfirhöndina en Valsmenn nörtuðu alltaf í hælana á þeim og hleyptu þeim aldrei fram úr sér. Eftir að hafa þjarmað allverulega að Harðverjum jöfnuðu Valsarar loksins í stöðunni 28-28 þegar rúmar 2 mínútur lifðu leiks. Þannig var staðan allt þangað til Matthías Ingi Magnússon skoraði sigurmarkið þegar 15 sekúndur lifðu leiks. Jóhann Ágústsson varði síðan lokaskot leiksins þegar nokkrar sekúndur voru eftir og kórónaði hann þar frábæran leik sinn.
Óvæntur og sterkur sigur hjá Valsmönnum á Ísafirði í dag.
Hjá Val 2 var Jóhann Ágústsson með 17 bolta varða. Matthías Ingi Magnússon var með 11 mörk.
Hjá Herði var Stefán Freyr Jónsson með 21 varin skot. Endijs Kusners setti 11 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.