
wFramFram ((Eyjólfur Garðarsson)
Í dag mættust Fram 2 og HK í Úlfarsárdal í Grill 66 deild kvenna.
Toppliðið HK byrjaði mun betur og voru komnar í 6-11 eftir korters leik. Þær voru ekkert á þeim buxunum að slaka á og keyrðu óhikað á Fram stelpurnar. Staðan í hálfleik var 11-20 fyrir HK.
Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Eftir korter í seinni hálfleik var staðan orðin 20-27. Fram stelpur náðu aldrei að klóra í bakkann almennilega og endaði leikurinn 26-35 fyrir HK.
HK stelpur verma því áfram toppsætið í deildinni.
Hjá HK skilaði markvarslan þeim 19 boltum vörðum. Dreifðist markaskorunin mjög jafnt og vel. Leandra Náttsól og Þórhildur Braga voru báðar með 6 mörk.
Hjá Fram 2 var Sara Rún Gísladóttir markahæst með 10 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.