Segir að formaður HSÍ eigi að segja af sér eftir miða fíaskóið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jón Halldórsson ((Baldur Þorgilsson)

Mikið hefur verið rætt og ritað um miðasöluna í kringum úrslitahelgina á Evrópumótinu sem fram fer nú í Herning í Danmörku. Íslenskir stuðningsmenn fengu margir hverjir áfall þegar ljóst varð að nánast engir miðar voru í boði á úrslitahelgina í Herning þegar íslenska landsliðið tryggði sér sæti í undanúrslitum mótsins.

Mikael Nikulásson einn af þríeykinu í hlaðvarpinu, Þungavigtinni var í Malmö þegar Ísland tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópumótsins. Hann var hinsvegar kominn heim til Íslands og fór ekki á undanúrslitaleikinn sem fram fór í gær. Rætt var um þetta í Þungavigtinni í gær þar sem Mikael, eða Mike eins og hann er kallaður, lét þung orð falla í garð Jóns Halldórssonar formanns HSÍ um málið.

Ein stór hneisa

,,Ég hefði nú alltaf getað reddað mér miða á úrslitahelgina, ég er nú Mike. En ég þurfti að mæta í þáttinn klukkan 10 í morgun og stundum kallar vinnan og fjölskyldan. Ef leikurinn hefði verið í Köben þá hefði ég framlengt og hringt Í Rikka Gjé. lítill í mér og beðið um frí. Ég nennti bara ekki að standa í þessu ferðalagi. Það verður bara að segja eins og er, þetta er ein stór hneisa. Þetta er ein stór hneisa,” sagði Mike sem benti á að úrslitahelgin færi fram í Herning og langt ferðalag beið þeirra íslensku stuðningsmanna sem ætluðu að að fara á leikina, þá örfáu sem fengu miða.

Jón Halldórsson formaður HSÍ sagði í viðtali í vikunni þegar ljóst varð hversu fáa miða íslenskir stuðningsmenn fengu á leikina að HSÍ hefði getað keypt miða snemma á síðasta ári en hafi ekki haft fjármagn í það. Drengirnir í Þungavigtinni voru ekki hrifnir af þeim afsökunum frá formanni HSÍ.

,,Afhverju talar HSÍ ekki við styrktaraðila sína og biðja þá um að kaupa miða ef þeir vissu af því að það þyrfti að kaupa miða með fyrirvara?” Spurði Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki Gjé.

,,HSÍ fer alltaf í sama kortið þegar það er vesen á þeim. Það er fátækakortið. Þeir fara alltaf í það, fyrir mér eiga menn bara að segja af sér eftir svona. Fyrirgefðu, ég ætla ekki að vera leiðinlegur. Málið er að þetta fátækakort er orðið vel þreytt. HSÍ vissu alveg fyrir löngu síðan hvernig þetta virkar. En gómar eins og við og sérstaklega ég, sem hef mikinn áhuga á handbolta var ekki að spá í þessu. Þegar ég keypti miðana mína á milliriðilinn þá var ég ekkert að spá í úrslitahelginni. Ég reiknaði bara með því að ef Ísland myndi fara í úrslitin þá væri þetta eins og í öllu öðru í heiminum þar sem eitthvað jafnrétti er í, að allar þjóðirnar myndu fá 3000 miða,” sagði Mike og þeir voru síðan sammála um að það væri galið að miðarnir á alla leikina á föstudeginum væru seldir saman sem dagspassi og einnig á lokaleikina á sunnudeginum.

Arion banki fékk ekkert símtal frá HSÍ

Mike sagðist vera með staðfestar heimildir frá Arion banka að þeir fengu aldrei símtal frá HSÍ og sagðist einnig hafa  staðfestar heimildir fyrir því frá góðum mönnum í Arion Banka að þeir hefðu sagt já á sekúndunni ef HSÍ hefði beðið þá um að kaupa miða fyrir sig. 

,,Þú hringir bara í Arion banka sem monta sig á því í hvert skipti sem gengur vel að þeir séu styrktaraðilar. Arion banki hafa verið styrktaraðilar HSÍ í 20 ár og góðir styrktaraðilar og sett fullt af peningum í þetta, auðvitað hefðu þeir keypt miða fyrir þá.”

,,Ég skal segja ykkur það að HSÍ hefur ekki haft hugmynd um það hvernig þetta virkaði, því það er enginn að vinna þarna. Síðan fá þeir þetta í hausinn núna og þá fara þeir segja þetta. Afhverju sleppti, formaður HSÍ, Jón Halldórsson ekki að nota fátækakortið? Afhverju varstu að segja að HSÍ hefði getað tekið frá miða? Hann hefði átt að sleppa því að segja það. En stundum tala menn af sér og ég hef gert það oft áður. Málið er að þetta miðamál er fíaskó.”

,,Að Ísland skuli vera með 150 manns í stúkunni í undanúrslitum í 15.000 manna höll er ekkert nema hneyksli. Við erum að fylla einhverja höll í Kristianstad með 3000 Íslendingum á móti Ítölum, þetta var ekki knattspyrnuleikur gegn Ítalíu, þeir kunna ekki handbolta en samt vorum við að fylla höllina. Síðan fáum við Dani í undanúrslitum í stórmóti og það eru rúmlega 100 í stúkunni. EHF er með allt niðrum sig í þessu en það er ekki hægt að taka ábyrgðina af HSÍ,” sagði Mike að lokum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top