Þreyttir íslenskir landsliðsmenn skikkaðir í fjölmiðlahitting í morgunsárið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orri Freyr Þorkelsson (Jonathan Nackstrand / AFP)

Fulltrúar HSÍ eru allt annað en sáttir með skipulag EHF á úrslitahelgi Evrópumótsins sem nú stendur yfir í Herning í Danmörku. Íslenska landsliðið tapaði gegn Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í gærkvöldi en leikurinn hófst klukkan 20:30 á staðartíma.

Íslensku landsliðsmennirnir voru mættir upp á liðshótel sitt rétt fyrir miðnætti og í kjölfarið tók við endurheimt leikmanna með sjúkraþjálfurum landsliðsins. Leikmenn landsliðsins áttu síðan að mæta á fjölmiðlahitting klukkan 10:30 á staðartíma í morgun.

Seint í gærkvöldi, eða eftir miðnætti sendi HSÍ tilkynningu á íslenska fjölmiðla að þeim fjölmiðlahittingi yrði frestað af ósk HSÍ og yrði tímasetning auglýst síðar. Klukkan 01:50 í nótt á staðartíma sendi HSÍ hinsvegar aðra tilkynningu á íslensku fjölmiðlamennina sem eru í Herning um að EHF hafi ekki orðið af beiðni Íslands.

,,Leikmenn landsliðsins eru og verða í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum næstu tvo tímana líklega. Þrátt fyrir það er það ósk EHF að Ísland mæti í "media call" klukkan 10:30 á morgun," segir meðal annars í skilaboðum frá HSÍ í nótt. Í morgunsárið var síðan sendur annar póstur þar sem sagt var að íslenski hópurinn mæti í Boxen höllina.

EHF hefur fengið mikla gagnrýni yfir skipulagsmálum í aðdraganda úrslitahelgarinnar en Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu lét vel í sér heyra á blaðamannafundi í fyrradag í aðdraganda leiks Króatíu og Þýskalands í undanúrslitum keppninnar.

EHF gaf út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem því var lofað að lið myndu ekki aftur spila tvo leiki á tveimur dögum, líkt og raunin var hjá Íslandi og Króötum auk annarra liða í milliriðli 2 í Malmö í vikunni.

Þess ber þó að hafa í huga að fjölmiðlahittingar landsliðanna í úrslitahelginni eru ekki ákveðnir með skömmum fyrirvara og lá það ljóst fyrir, fyrir löngu hvenær íslenska landsliðið ætti að mæta í fjölmiðlahittinginn í morgun. Þeim var ekki tilkynnt það í gærkvöldi. Hvort forsvarsmenn HSÍ hefðu ekki betur átt að gera athugasemd við tímasetninguna með töluvert meiri og betri fyrirvara er önnur umræða.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top