Mathias Gidsel (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)
EHF hefur opinberað úrvalslið Evrópumótsins sem lýkur í dag með tveimur leikjum. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið klukkan 14:15 og klukkan 17:00 mætast Danmörk og Þýskaland í úrslitaleik mótsins. Í úrvalsliði Evrópumótsins eru leikmenn frá sex þjóðum en Þjóðverjar eru þeir einu sem eiga tvo leikmenn í liðinu þá Andreas Wolff og Johannes Golla. Gísli Þorgeir Kristjánsson er fulltrúi Íslands í úrvalsliðinu. Gísli Þorgeir hefur verið stórkostlegur í sóknarleik Íslands á mótinu og er fyrir loka leiki mótsins stoðsendingarhæsti leikmaður mótsins með 54 stoðsendingar. Andreas Wolff er í úrvalsliði Evrópumótsins í þriðja sinn á ferlinum. Mathias Gidsel leikmaður Danmerkur hefur verið útnefndur MVP mótsins en MVP leikmaður á hverju stórmóti er ekki í úrvalsliðinu sjálfu og það er því Francisco Costa sem er í hægri skyttu stöðunni í úrvalsliðinu en hann var kosinn besti ungi leikmaður mótsins. Úrvalslið Evrópumótsins 2026 er þannig skipað: Markmaður: Andreas Wolff (Þýskaland) Vinstra horn: August Pedersen (Noregur) Vinstri skytta: Simon Pytlick (Danmörk) Miðja: Gísli Kristjánsson (Ísland) Hægri skytta: Francisco Costa (Portugal) Hægra horn:: Mario Šoštarić (Króatía) Línumaður: Johannes Golla (Þýskaland) Besti Varnarmaðurinn: Salvador Salvador (Portugal) Besti ungir leikmaðurinn: Francisco Costa (Portúgal) MVP: Mathias Gidsel (Danmörk)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.