Dominik Kuzmanovic (Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)
Samkvæmt króatískum fjölmiðlum hafa veikindi komið upp í leikmannahópi króatíska landsliðsins í aðdraganda leik Íslands og Króatíu á Evrópumótinu en liðin mætast í Herning í dag klukkan 14:15 í leik um bronsverðlaun á mótinu. Bæði lið töpuðu í undanúrslitum mótsins á föstudaginn. Króatar gegn Þýskalandi og Ísland gegn Danmörku. Báðir leikirnir enduðu með sömu markatölu 31-28. Leikmenn sem nefndir eru sem hafa orðið veikir og eru jafnvel enn veikir eru engin smá nöfn. Um er að ræða markverðina, Dominik Kuzmanovic og Matej Mandic og hægri hornamanninn, Filip Glavas. Það verður áhugavert að sjá hvort þessir þrír leikmenn sem nefndir eru verða í leikmannahópi Króata í dag og hvort þeir hafi náð heilsu til að leika síðasta leikinn á Evrópumótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.