Orfeus - Víðir í Garði (Víðir)
Grikkinn, Orfeus Andreou leikmaður Víðis í 2.deild karla er þessa dagana á reynslu hjá HK og lék í síðustu viku æfingarleik með HK gegn Stjörnunni. Félagaskiptaglugginn lokaði á Íslandi um mánaðarmótin en ekki liggur fyrir hvort HK hafi samið við Orfeus. Orfeus Andreou er örvhentur leikmaður sem leikið hefur með Víði í 2.deild karla undanfarin ár og verið markahæsti leikmaður liðsins frá stofnun þess. Á þessu tímabili hefur hann skoraði átta mörk að meðaltali í leik með Víði eða 56 mörk alls í sjö leikjum. Er hann næst markahæsti leikmaður 2.deildarinnar á eftir Matthíasi Inga Magnússyni leikmanni ÍR sem leikur með ÍR 2 í 2.deildinni en Matthías hefur skorað 66 mörk í sjö leikjum. HK-ingar hafa einungis verið með eina örvhentu skyttu í Olís-deildinni fyrir áramót en Kári Tómas Hauksson yfirgaf HK og elti ástina til Þýskalands og leikur í þýsku neðri deildinni en kærasta hans, Elín Rósa Magnúsdóttir gekk í raðir Blomberg-Lippe frá Val í sumar. HK er í 9.sæti Olís-deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Stjarnan sem er í 8.sæti deildarinnar. Olís-deild karla fer af stað í vikunni eftir langa og góða jóla og EM-pásu. Það verður fróðlegt að sjá hvort Grikkinn, Orfeus Andreou gangi í raðir HK eftir áramót og leiki með liðinu það sem eftir er af tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.