Jóhann Birgir Ingvarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Jóhann Birgir Ingvarsson leikmaður HK í Olís-deild karla verður frá keppni næstu vikurnar og missir þar af leiðandi af upphafi Olís-deildarinnar á nýju ári. Þetta staðfesti Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK í samtali við Handkastið. Jóhann Birgir varð fyrir því óláni að handarbrotna fyrir skemmstu og verður frá í keppni í það minnsta átta vikur. Jóhann Birgir gekk í raðir HK í upphafi tímabils en hann hafði leikið með ÍH í neðri deildum Íslandsmótsins síðustu tímabil. Hann hefur leikið 12 leiki með HK á tímabilinu og hefur skorað í þeim leikjum 15 mörk. HK fær deildarmeistara og uppeldisfélag Jóhanns, FH í heimsókn í Kórinn á morgun í upphafsleik Olís-deildarinnar á nýju ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.