KA/Þór tryggðu sér í undanúrslit eftir sigur á Gróttu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Tinna Jensdóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

Næst síðasti leikurinn í 8 liða úrslitum Powerade bikarsins þegar Grill 66 deildar lið Gróttu fékk Olís deildar lið KA/Þór í heimsókn til sín á Seltjarnarnesið.

Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins og var það ekki fyrr en eftir um 25 mínútur sem KA/Þór náði að slíta sig frá spræku Gróttu liði þegar þær komust þrem mörkum yfir, 9-12. Gestirnir að norðan náðu að bæta í forskotið fyrir hálfleik og leiddu þær 10-14 þegar liðið gengu til búningsklefa.

Þegar síðari hálfleikur var hálfnaður höfðu Grótta náð að minnka muninn í tvö mörk, 17-19 og allt stefni i æsispennadi lokakafla. Bernadetta Leiner markvörður KA/Þór hrökk þá í gírinn og KA/Þór gekk á lagið og breytti stöðunni í 17-23 og örfáar mínútur til leiksloka.

Grótta náði aðeins að klóra í bakkann undir restina og lokatölur urðu öruggur þriggja marka sigur KA/Þór, 21-24. Þær eru því komnar í Final 4 sem fram fer á Ásvöllum í lok febrúar en dregið verður í undanúrslitin á næstu dögum.

Ída Margrét Stefánsdóttir var markahæst hjá Gróttu í kvöld með 7 mörk en hjá KA/Þór var Bergrós Ásta Guðmundsdóttir markahæst með 5 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top