
Stjarnan (Egill Bjarni Friðjónsson)
Atli Hrafn Bernburg er genginn í raðir Stjörnunnar frá Val en hann kemur í Garðabæinn á lánssamningi. Atli Hrafn er yngri bróðir, línumannsins Jóels Bernburg sem gekk í raðir Stjörnunnar frá Val fyrir síðustu leiktíð. Atli Hrafn er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar í janúar en áður hafði félagið samið við Aron Val Gunnlaugsson á láni frá Aftureldingu en hann hafði leikið með Hvíta riddaranum í Grill66-deildinni og þá hefur Gunnar Valdimar Johnsen tekið fram skóna en hann lék síðast með Fossvogs-Víkingum. Atli Hrafn hefur undanfarin ár leikið með Val 2 í Grill66-deildinni en á þessu tímabili hefur Atli leikið átta leiki með Val 2 og skorað í þeim leikjum 17 mörk. Stjarnan er í 8.sæti Olís-deildarinnar og fær nýliða Þórs í heimsókn í Heklu-höllina á fimmtudaginn. Liðið varð fyrir áfalli á dögunum þegar Pétur Árni Hauksson sleit krossband. Þá sagði stjórn Stjörnunnar upp samningi við Ungverjann Rea Barnabás fyrir áramót og þá gekk Ólafur Brim Stefánsson í raðir ítalskt félags um áramótin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.