
Árni Snær Þorvar Bjarmi dómari (Eyjólfur Garðarsson)
Handboltahöllin vakti athygli á því í þætti sínum sem sýndur er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans að kvennalið Stjörnunnar var rænt sirkus marki í leik liðsins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna í síðustu umferð. Það var í lok fyrir hálfleiks sem Natasja Hammer skoraði að svo virðist, löglegt sirkus mark í stöðunni 15-13 og hafði þar með getað minnkað muninn í 15-14. Þorvar Bjarmi Harðarson annar af dómurum leiksins sá hinsvegar eitthvað sem enginn annar virðist hafa séð og dæmdi markið ólöglegt. Það er nú oft talað um að dómarar geti misst af atvikum en það er óafsakanlegt að mati Handkastsins að dómarar dæmi sóknarbrot á atvik sem í raun og veru eiga sér ekki stað eins og í þessu tilfelli. Hægt er að sjá sirkusmarkið og umfjöllun Handboltahallarinnar um markið hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.