Strákarnir okkar leika gegn Svíum á Íslandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu mætir sænska landsliðinu í tveimur æfingaleikjum hér á landi seinni partinn í mars. Þetta staðfesti Jón Halldórsson formaður HSÍ í viðtali við RÚV í dag.

Bæði íslenska og sænska landsliðið hafa tryggt sér þátttökurétt á HM á næsta ári eftir góðan árangur á Evrópumótinu. Ísland endaði í 4.sæti á EM á meðan Svíþjóð endaði í 6.sæti eftir tap gegn Portúgal í sæti um 5.sætið á mótinu.

Ísland og Svíþjóð mættust í milliriðli Evrópumótsins í janúar þar sem Ísland vann frábæran átta marka sigur, 35-27 en leikurinn fór fram í Malmö í Svíþjóð. Sigur Íslands var mikilvægur partur í því að tryggja sæti í undanúrslitum mótsins.

Æfingaleikirnir við Svíþjóð í mars verða þeir fyrstu sem karla landslið Íslands leikur á heimavelli síðan fyrir Covid-19. Síðustu æfingaleikir íslenska karla landsliðsins sem leiknir voru á Íslandi voru gegn Barein sem lék þá undir stjórn Arons Kristjánssonar. Þeir leikir fóru fram í janúar árið 2019 en leikirnir voru í undirbúningi beggja þjóðanna fyrir heimsmeistaramótið sama ár.

,,Hlutirnir breytast þar sem við erum komnir inn á HM 2027. Góðu fréttirnar eru þær að við erum að fá Svíana til okkar í mars. Það verður gaman að fá alvöru handboltalið til að spila á móti okkur og fá að spila fyrir framan þjóðina. Næsti æfingagluggi verður síðan í maí og við setjumst niður og spáum og spekúlerum um það á morgun, hvernig hann verður nýttur. Það er í rauninni svolítið þjálfarana að setjast niður og þeir leggja fyrir okkur þeirra óskir og við vinnum síðan eftir þeim," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ í viðtali við RÚV.

Gera má ráð fyrir að uppselt verði á leikina gegn Svíum í mars enda er mikill áhugi hér á landi fyrir Strákunum okkar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top