Garðar Ingi Sindrason - FH (J.L.Long)
Garðar Ingi Sindrason var kynntur sem nýr leikmaður Gummersbach um miðjan janúar mánuð en hann gengur í raðir þýska félagsins næsta sumar frá uppeldisfélagi sínu FH. Handkastið heyrði í Garðari Inga á dögunum og spurði hann aðeins út í ákvörðun hans að ganga í raðir Gummersbach næsta sumar en þjálfari liðsins er Guðjón Valur Sigurðsson. Með Gummersbach leika Teitur Örn Einarsson og Elliði Snær Viðarsson. ,,Ég heyrði fyrst af áhuga þeirra um miðjan nóvember og viðræðurnar fóru af stað aðeins eftir það. Það voru nokkur félög sem höfðu einnig áhuga en ég fór ekki í neinar almennilegar viðræður við önnur félög en Gummersbach,” sagði Garðar Ingi. En afhverju valdi hann Gummersbach á þessum tímapunkti? ,,Ég valdi Gummersbach vegna þess að ég tel þetta vera gott næsta skref á mínum ferli með Guðjón Val sem þjálfara og aðstæður frábærar.” ,,Þeir þurftu í raun lítið að selja mér hugmyndina að koma til þeirra. Þegar svona stórt félag hefur áhuga á manni er erfitt að segja nei. Þeir sjá mig fyrir sér sem framtíðar leikmann hjá félaginu.” Var alltaf hugmyndin hjá þér að fara út eftir þetta tímabil? ,,Það var alveg planið, ef rétta félagið með rétta þjálfaranum kæmi upp.” Garðar Ingi verður í eldlínunni með FH þegar Olís-deildin fer aftur af stað annað kvöld. FH fer í Kórinn og mætir þar HK klukkan 18:00 en fyrsta umferðin í Olís-deild karla hefst á morgun og lýkur síðan á fimmtudagskvöld með þremur leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.