Vilji hjá HSÍ að halda Snorra Steini
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson (Johan Nilsson/TT / TT NEWS AGENCY / AFP) / Sweden OUT / SWEDEN OUT

Jón Halldórsson formaður HSÍ sagði í viðtali við RÚV í dag að HSÍ myndi setjast niður með Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara Íslands og ræða framhaldið.

Samningur Snorra Steins við HSÍ rennur út um mitt ár en hann tók við íslenska landsliðinu sumarið 2023 og var að ljúka sínu þriðja stórmóti. Ísland endaði í 4.sæti Evrópumótsins eftir tap gegn Króatíu í bronsleiknum á sunnudaginn með einu marki.

Þetta var í fyrsta sinn í 16 ár sem Ísland lék um verðlaun á stórmóti.

,,Samningur Snorra Steins er til mitt ár eins og við vissum. Við, ásamt Snorra Steini höfðum rætt það fyrir mót að við myndum setjast niður eftir mót og ræða framhaldið. Það er það sem við erum að fara gera á næstu vikum. Ég er rosalega ánægður með Snorra Stein og hann er á hárréttri leið með landsliðið og það er mikill vilji hjá sambandinu að halda því samstarfi áfram," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ í viðtali við RÚV.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top