Áherslubreytingar hjá Melsungen – Ekki lengur tilbúið að opna veskið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dainis Kristopanis (MARIUS BECKER / dpa Picture-Alliance via AFP)

Sögusagnir um spænsku bræðurna Alex og Daniel Dujshebaev hafa verið á kreiki í marga mánuði. Báðir spænsku landsliðsmennirnir verða samningslausir í sumar eftir langa dvöl hjá Industria Kielce í Póllandi. Samkvæmt nokkrum fjölmiðlum er Alex nálægt því að fara til VfL Gummersbach, en yngri bróðir hans, Daniel, hefur nýlega verið orðaður við Melsungen.

Hins vegar er ólíklegt að Daniel Dujshebaev fari til þýsku þýska félagsins. Þetta segir Andreas Mohr, stjórnarmaður hjá Melsungen, í viðtali við HNA, sem Handball-world birti.

„Dujshebaev er ekki í umræðunni hjá okkur,“ sagði Mohr og hafnar þar með þessum þrálátu sögusögnum. Þá hefur króatíski hægri hornamaðurinn, Filip Glavas einnig verið orðaður við Melsungen frá RK Zagreb. Glavas er samningsbundinn RK Zagreb og talið er ólíklegt að hann gangi í raðir Melsunge.

Samkvæmt Mohr er Melsungen ekki lengur tilbúið að taka þátt í dýrum tilboðsstríðum um leikmenn.

,,Ef annað félag leggur fram hærra tilboð, þá er Melsungen ekki lengur tilbúið að opna veskið sitt og eyða hærri upphæð eins og hefur verið raunin áður," sagði Mohr sem kallar þetta ,,nýja Melsungen".

Segja mætti að þetta marki breytingu á stefnu félagsins sem hefur verið þekkt fyrir að sækja sterka og dýra leikmenn til sín en nú vill félagið breyta um stefnu og styrkja fjárhagslega stöðu félagsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top