Bergrós Ásta Guðmundsdóttir (Eyjólfur Garðarsson)
Dregið verður í undanúrslit Powerade-bikarsins í hádeginu næstkomandi föstudag en sjö af þeim átta liðum sem leika í Final 4 helginni á Ásvöllum 25.-28. febrúar eru klár. Í kvöld mætast FH og Valur í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna en það er síðasta viðureignin sem eftir á að leika í 8-liða úrslitunum. KA/Þór og Haukar tryggðu sér sæti í Final 4 bikarhelgi kvenna í gær með sigrum á Grill66-deildarliðum Gróttu og Víking og þá vann Fram eins marks sigur á ÍR á mánudagskvöldið. Hjá körlunum verða ÍR, FH, KA og Haukar í pottinum þegar dregið verður á föstudaginn. Fram eru ríkjandi bikarmeistarar í karla flokki á meðan Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar kvennamegin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.