Rúnar Sigtryggsson (JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)
Sænski markvörðurinn, Andreas Palicka leikmaður Kolstad í Noregi sem lagði landsliðskóna á hilluna eftir nýafstaðið Evrópumót er nú orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið, Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson er við stjórnvölinn. Andreas Palicka er einn af fjölmörgum leikmönnum Kolstad sem getur yfirgefið félagið tafarlaust vegna fjárhagsvandræða Kolstad. Hefur Palicka verið orðaður við Fuchse Berlín frá og með næsta sumri en nú er orðrómur uppi um að Palicka gangi til liðs við Wetzlar til skammstíma eða út þetta tímabil. Wetzlar er í fallbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar en Rúnar Sigtryggson tók við liðinu seint á síðasta ári. Andreas Palicka er nefndur í nýjum sögusögnum um mögulega félagaskipti til HSG Wetzlar, stuttu eftir að hann tilkynnti um starfslok sín hjá landsliðinu eftir Evrópumótið. Það er Hen Livgot sem greinir frá orðróminum á X-síðu sinni. Palicka tilkynnti eftir Evrópumótið að hann væri að hættur að leika með sænska landsliðinu. Palicka er fæddur í júlí 1986 og verður fertugur í sumar. Hann gekk í raðir Kolstad í sumar eftir þrjú ár hjá Paris Saint Germain. Hann hefur áður leikið í Þýskalandi en hann lék sjö tímabil með Kiel og lék síðan einnig með Rhein Neckar Lowen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.