FH fær leikmann frá Danmörku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sylvía Björt Blöndal (FH)

Kvennalið FH í Grill66-deildinni hefur fengið mikinn og góðan liðstyrk fyrir næsta tímabil því félagið tilkynnti í síðustu viku að Sylvía Björt Blöndal hefur gert tveggja ára samning við FH og gengur til liðs við félagið í sumar.

Sylvía sem er 24 ára rétthent skytta kemur til FH frá Danmörku þar sem hún hefur spilað handbolta meðfram meistaranámi. Sylvía, sem er uppalin í FH, lék með Aftureldingu áður en hún fór erlendis og var meðal annars næstmarkahæst í Olís deild kvenna árið 2022 með 120 mörk og langmarkahæst í Grill 66 deild kvenna árið 2023 með 157 mörk í aðeins 16 leikjum.

,,Við erum gríðarlega ánægð með að fá Sylvíu til okkar í FH og bindum miklar vonir við hana. Sylvía er leikmaður sem við vorum að leitast eftir og lögðum mikla áherslu á að fá hana til okkar þegar við fréttum að hún væri á leið heim til Íslands. Hún mun styrkja liðið verulega á báðum endum vallarins enda bæði markaskorari og öflugur varnarmaður," sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH.

Sylvía mun að öllum líkindum styrkja lið FH gríðarlega á næsta tímabili en liðið hefur átt erfitt uppdráttar síðustu tímabil og sigrarnir verið fáir hjá liðinu undanfarin ár.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top