
HK (Egill Bjarni Friðjónsson)
HK fengu FH í heimsókn til sín í Kórinn í 16.umferð Olís deildar karla í kvöld en þetta var fyrsti leikur liðanna eftir Evrópumótið í handbolta. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á því að hafa forystuna sem var þó aldrei meiri en eitt mark í aðra hvora áttina. Það var svo undir lok fyrri hálfleik sem FH náði að slíta sig tveim mörkum frá HK og leiddi í hálfleik 14-16. HK komu grimmur til leiks í síðari hálfleik og voru komnir yfir þegar hálfleikurinn var um fimmtán mínútna gamall og margir FH-ingar eflaust farnir að hugsa til ófaranna síðast gegn HK. FH náðu þó vopnum sínum aftur og voru komnir með þriggja marka forskot þegar um 7 mínútur voru eftir af leiknum og leit út fyrir að þeir ætluðu að sigla sigrinum þægilega heim. HK komu þá aftur til baka og minnkuðu muninn í 29-30 þegar 90 sekúndur voru eftir. FH skoraði þó síðustu tvö mörk leiksins og unnu að lokum þriggja marka sigur 29-32. Sigurður Jefferson Guarino var markahæstur hjá HK í kvöld með 10 mörk en hjá FH var Jakob Martin Ásgeirsson markahæstur með 7 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.