Baldur Fritz Bjarnason (Sævar Jónasson)
Í þar síðustu viku tilkynnti toppliðið í sænsku úrvalsdeildinni, Kristianstad að félagið hafi samið við tvo íslenska leikmenn í Olís-deild karla. Þá Andra Erlingsson leikmann ÍBV og Baldur Fritz Bjarnason leikmann ÍR. Ganga þeir báðir í raðir Kristianstad næsta sumar en Andri gerði þriggja ára samning við sænska félagið á meðan Baldur Fritz gerði tveggja ára samning. Handkastið heyrði í Baldri Fritz og spurði hann aðeins út í ákvörðun hans að semja við sænska félagið fyrir næsta tímabil. ,,Ég hafði alltaf stefnt á það að fara beint út eftir menntaskólann. Það var alltaf markmiðið frá því ég var lítill að sjá Gísla Þorgeir og Hauk Þrastarson fara unga út. Ég er mjög spenntur fyrir þessu og tilfinningin er góð að þetta sé orðið klárt. Mér finnst þetta vera rétt skref og mikilvægt skref fyrir mig,” sagði Baldur Fritz sem er í dag markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar hingað til með jafn mörg mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson leikmaður KA. Baldur var markakóngur Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð. ,,Kristianstad heillaði mig því þeir eru með sturlaða æfingaaðstæðu, umgjörð og hvernig þeir vilja vinna með unga leikmenn. Þetta er fullkominn staður fyrir mig að halda áfram að leggja hart af mér og bæta mig sem handboltaleikmann,” sagði Baldur sem heyrði fyrst af áhuga Kristianstad í vetur og segir hann að viðræður milli hans og félagsins hafi farið af stað fljótlega eftir það. ,,Það voru fleiri áhugaverðir möguleikar í boði en Kristianstad var alltaf efst í huga.” Áður en Baldur yfirgefur ÍR og gengur í raðir Kristianstad bíður hans mikilvægt verkefni hjá uppeldisfélaginu en ÍR er á botni Olís-deildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir. Auk þess er ÍR komið í Final4- bikarúrslitahelgina. ,,Næstu leikir verða stríð og við munum selja okkur dýrt og ég ætla að gefa allt í lokakaflann með ÍR,” sagði Baldur en Olís-deild karla fer aftur af stað í kvöld. ÍR fær KA í heimsókn í Skógarselið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.