Garðar Benedikt og Jakob Ingi (ÍBV)
Olís deild karla hefst aftur eftir um 30 mínútur og það eru tíðindi sem berast strax úr Vestmannaeyjum. Þegar skýrslan er skoðuð má sjá að formaður handknattleiksdeildar ÍBV, Garðar Benedikt Sigurjónsson, hefur tekið fram skónna á ný og er til taks fyrir sitt lið ÍBV. Garðar Benedikt lék síðast með ÍBV 2 í Powerade bikarnum á þessari leiktíð en þar kom liðið á óvart og sló Hörð út eftirminnilega en þurfti svo að lúta í lægra haldi gegn KA. Mikil meiðsli eru í herbúðum ÍBV og vantar til að mynd Róbert Sigurðarson og Ísak Rafnson í vörnina og verður forvitnilegt hvort Garðar muni hlaupa í skarðið fyrir þá.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.