
Petar Jokanovic Pavel (Eyjólfur Garðarsson)
Karlalið ÍBV eru samkvæmt heimildum Handkastsins í viðræður við markmann frá Slóveníu fyrir næsta tímabil. Samningur Petar Jokanovic markmanns ÍBV síðustu ár rennur út næsta sumar en auk þess eru ÍBV með tvo efnilega markverði á sínum snærum. Þá Morgan Goða Garner og Sigmund Gísla Unnarsson. Markvörðurinn sem ÍBV er í viðræður við, heitir Tilen Grudnik og er fæddur árið 1999. Hann leikur í dag með RD Loka en liðið er um þessar mundir í 9.sæti slóvensku úrvalsdeildarinnar með 12 stig. Tilen Grudnik er talinn mjög frambærilegur markvörður og var einn af betri markvörðum slóvensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Hann hefur einnig leikið með MRD Dobova og RD Grasist Slovan í Slóveníu. Það verður fróðlegt að sjá hvort Eyjamenn nái að semja við Grudnik og hvort þetta sé síðasta tímabil Peters Jokanovic í herbúðum ÍBV. ÍBV verður í eldlínunni í Olís-deild karla í kvöld þegar deildin fer aftur af stað eftir jóla og EM pásu en ÍBV fær nýliða Selfoss í heimsókn klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.