
Arnór Þór Gunnarsson (Bergischer)
Arnór Þór Gunnarsson hefur framlengt samningi sínum sem þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins, Bergischer til ársins 2028. Félagið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni fyrr í dag. Arnór Þór Gunnarsson og Markus Pütz verða áfram þjálfarar liðsins næstu tvö tímabilin en þeir hafa báðir framlengt samningum sínum til ársins 2028. ,,Með vinnu sinni, nákvæmni, skilningi á því hvernig Bergischer HC starfar og hugmyndafræði félagsins, eru þeir greinilega að einbeita sér að þróun félagsins á öllum sviðum,“ sagði Fabian Gutbrod við heimasíðu félagsins. Arnór Þór hefur verið hjá félaginu allt frá tímabilinu 2012/2013 er hann lék sem leikmaður en hann lék ellefu tímabil með félaginu. Hann lagði handboltaskóna á hilluna eftir tímabilið 2023/2024 og fór þá beint inn í þjálfarateymi liðsins. Þá varð hann aðstoðarþjálfari þáverandi þjálfara liðsins, Jamal Naji. Markus Pütz hefur verið hjá félaginu síðan 2014, byrjaði sem unglingaliðsþjálfari og hefur verið hluti af meistaraflokksþjálfarateymi félagsins frá árinu 2017 í ýmsum hlutverkum. Eftir að Naji hætti störfum í apríl 2024 tóku Arnór Þór og Pütz sameiginlega við liðinu. Bergischer eru nýliðar í þýsku úrvalsdeildinni eftir stutta veru í þýsku B-deildinni. ,,Við erum himinlifandi að geta haldið áfram að vinna saman hjá Bergischer, því við njótum þess gríðarlega að vinna fyrir félagið og með liðinu. Við hlökkum til að takast á við áskoranirnar sem framundan eru næstu tvö árin. Með stuðningi frábærra stuðningsmanna okkar viljum við ná sem bestum árangri saman. Við munum gefa allt okkar í verkefnið," sagði Arnór Þór Gunnarsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.