Hættir Gunnar Valur með Fjölni eftir tímabilið?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Valur Arason (Sævar Jónasson)

Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Gunnar Valur Arason ekki þjálfari kvennaliðs Fjölnis á næsta tímabili. Samkvæmt heimildum Handkastsins er stjórnarmenn Fjölnis farnir í leit af eftirmanni Gunnars sem á að taka við kvennaliði félagsins frá og með næsta sumri.

Gunnar Valur tók við sameiginlegu liði Fjölnis/Fylkis fyrir tímabilið 2020/2021 og er því á sínu sjötta ári með kvennalið Fjölnis. Fjölnir og Fylkir sameinuðu lið sín fyrir tímabilið sem Gunnar Valur tók við liðinu ásamt Gísla Steinari Jónssyni.

Sameining félaganna er þó ekki lengur í meistaraflokki og spilar liðið einungis undir nafni Fjölnis í dag.

Liðið er í 4.sæti Grill66-deildarinnar um þessar mundir með 10 stig, jafn mörg stig og Fram 2, Valur 2 og FH en Afturelding er á botni deildarinnar með 9 stig. Átta lið taka þátt í Grill66-deildinni á þessu tímabili. 

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top