
Mads Mensah (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)
Mads Mensah hefur ákveðið að leggja landsliðskóna á hilluna og gefa ekki kost á sér í danska landsliðið en hann varð um síðustu helgi Evrópumeistari með danska landsliðinu á heimavelli eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins. Mensah sem er 34 ára gamall gekk í raðir Skjern í dönsku úrvalsdeildinni í sumar eftir að hafa leikið með Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í fimm tímabil og þar áður með Rhein Neckar Löwen. Nikolaj Jacobsen þjálfari Dana sagði í viðtali við TV2 í Danmörku að hann hafi orðið undrandi þegar Mensah tilkynnti honum ákvörðun sína og sagðist ekki vera sammála honum um að þetta væri rétti tíminn hjá honum að hætta að leika með danska landsliðinu. 15 ár eru síðan hann lék sinn fyrsta landsleik með danska landsliðinu en hann hefur leikið í kringum 225 landsleiki og unnið heimsmeistaramótið fjórum sinnum og varð Evrópumeistari í fyrsta skipti um síðustu helgi. Danmörk hafði ekki orðið Evrópumeistari frá árinu 2012 eða í 14 ár, Mads Mensah var ekki hluti af því liði. Þá varð hann Ólympíumeistari með Dönum í Rio 2016 og vann til silfurverðlauna í Tokyo.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.