Oddur Gretarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Oddur Gretarsson var ánægður með fimm marka sigur sinna manna í Þór Akureyri þegar þeir heimsóttu Stjörnuna í Garðabæinn í kvöld. Hann segir þessi stig hafa verið lífsnauðsynleg fyrir þá baráttu sem Þór er í á botni deildinnar en það er stutt upp í úrslitakeppnina. Hann viðurkenndi þó að hann hefði viljað sjá sigurinn vera stærri í dag en honum fannst Þórsliðið gefa eftir í síðari hálfleik. Oddur var fábær í liði Þórs í kvöld og skoraði 11 mörk en viðurkenndi þó að sigurinn hafi verið sætari en mörkin 11. Kári Kristjáns hélt sér í formi fyrir sunnan meðan EM fór fram og var Oddur ánægður með standið á Kára þó hann hefði viljað sjá hann nýta færin betur en skrifaði það sennilega á of mikla setu í EM stofunni. Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.