Norðurlöndin: Danska deildin farin af stað
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tryggvi Þórisson (Kristeinn Steinn Traustason)

Danska deildin er einnig farin að rúlla eftir EM pásuna en þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í bæði Danmörku og Noregi.

Í Danmörku fengu Ribe-Esbjerg stóran skell á heimavelli þegar þeir tóku á móti Nordsjælland, lokatölur urðu 31-41 fyrir gestina en Elvar Ásgeirsson var ekki með í liði heimamanna að þessu sinni.

Elverum fór aftur á toppinn í Noregi þegar liðið vann Nærbø á heimavelli, 34-28. Liðið er tveimur stigum á undan Kolstad sem fylgir hart á eftir. Tryggvi Þórisson átti fínan leik í liði heimamanna en hann skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir liðið og fékk að auki eina brottvísun.

Drammen unnu góðan útisigur á Sandnes, 26-33 en Ísak Steinsson átti flottan leik fyrir gestina. Hann varði níu skot af þeim tuttugu og þremur sem hann fékk á sig eða 39% markvarsla.

Úrslit kvöldsins:

Ribe-Esbjerg 31-41 Nordsjælland

Elverum 34-28 Nærbø

Sandnes 26-33 Drammen

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top