Fram byrjar árið á sigri í nágrannaslag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

FramFram (Kristinn Steinn Traustason)

Fram tók á móti Aftureldingu í lokaleik 16.umferð Olís deildar karla í kvöld í Úlfarsárdalnum.

Afturelding var í öðru deildarinnar fyrir leik kvöldsins en Fram sat í því sjöunda.

Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir í fimm marka forskot eftir einunigs fimm mínútna leik. Þá virtust gestirnir úr Mosfellsbænum ranka við sér og eftir um fimmtán mínútna leik voru þeir búnir að jafna leikinn í 9-9.

Fram náði þá aftur góðum kafla undir lok fyrri hálfleiks og leiddu í hálfleik með fjórum mörkum, 16-12.

Afturelding náði að minnka muninn í eitt mark í upphafi síðari hálfleiks en nær komust þeir ekki heimamönnum í kvöld sem unnu góðan fjögurra marka sigur, 30-26.

Breki Hrafn Árnason var frábær í marki Fram í kvöld og varði 14 skot í leiknum eða 35% þeirra skota sem komu á hann.

Eiður Rafn Valsson var markahæstur með 6 mörk hjá heimamönnum en hjá Afturelding var Árni Bragi Eyjólfsson markahæstur með 6 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top