Haukar hentu Val úr toppsætinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Valur (Sævar Jónasson)

Valur tók á móti Haukum á Hlíðarenda í kvöld í 16.umferð Olís deildar karla í sannkölluðum toppslag.

Haukar byrjuðu leikinn talsvert betur og léku við hvern sinn fingur og refsuðu Val fyrir öll sóknarmistök sem þeir gerðu með hraðaupphlaupum í bakið á þeim. Haukar voru komnir með fimm marka forskot og virtust ætla að hlaupa með leikinn en þá svaraði Valur með fimm mörkum í röð og jafnaði leikinn 8-8.

Þá var komið að Haukum að svara á ný og náðu þeir strax þriggja marka forskoti. Þeir bættu jafnt og þétt í forskotið og leiddu í hálfleik 15-22. Undir lok fyrri hálfleiks meiddist Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals illa og var borinn af velli og litu meiðslin ekki vel út.

Haukar litu í raun aldrei um öxl í síðari hálfleik og bættu jafnt og þétt í forskotið sitt og leiddu mest með um 10 marka mun en slógu aðeins af bensíngjöfinni undir lok leiksins og voru lokatölur 34-41 sigur gestanna frá Hafnarfirði.

Skarphéðinn Ívar Einarsson fór á kostum í liði Hauka í kvöld og skoraði 11 mörk úr 12 skotum en hjá Valsmönnum voru Arnór Snær Óskarsson og Gunnar Róbertsson markahæstir með 6 mörk.

Grétari Ari Guðjónsson sem gekk í raðir Hauka frá AEK Aþenu á dögunum stóð í marki Hauka og varði 11 skot eða 30% skota sem hann fékk á sig.

Haukar komust því fyrir ofan Val og sitja á toppi deildinnar en Afturelding er að spila við Fram þegar þessi frétt er skrifuð og eiga ennþá mögulega á að taka toppsætið.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top