Selfoss fær til sín markvörð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

wSelfoss (Sigurður Ástgeirsson)

Botnlið Selfoss í Olís-deild kvenna hefur styrkt sig fyrir lokaátökin í deildinni en markvörðurinn, Selma Þóra Jóhannsdóttir hefur gert félagaskipti yfir í Selfoss frá FH.

Selma Þóra lék síðast með FH í Grill66-deildinni tímabilið 2022/2023 en hún hafði þar áður leikið með HK og Haukum en Selma er uppalinn í Gróttu.

Selma er fædd árið 1998 býr á Selfossi en hún lék á árum áður með öllum yngri landsliðum Íslands og var auk þess valin í æfingahóp A-landsliðshóp Íslands árið 2017.

Selfoss er eins og fyrr segir á botni Olís-deildar kvenna með fjögur stig, einu stigi á eftir Stjörnunni. Selfoss mætir Fram í fyrsta leik 16. umferðarinnar í kvöld klukkan 18:00 en 16.umferðin heldur síðan áfram um helgina og lýkur á sunnudaginn með leik KA/Þórs og ÍBV.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top