Andreas Palicka (Beate Oma Dahle / NTB / AFP)
Athygli vakti margra að Andreas Palicka sænski markvörður Kolstad var ekki í leikmannahópi liðsins í jafntefli gegn Follo í norsku úrvalsdeildinni í gær. Sigurjón Guðmundsson fyrrum markvörður HK var í leikmannahópi Kolstad í leiknum auk þess sem Sigvaldi Björn Guðjónsson og Benedikt Gunnar Óskarsson léku einnig í leiknum í gær. Andreas Palicka er einn af fjölmörgum leikmönnum Kolstad sem fengu leyfi til að yfirgefa liðið fyrir áramót vegna fjárhagsvandræða en hann var orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar í gær þar sem Rúnar Sigtryggsson stýrir skútunni. Það að Palicka var ekki með Kolstad í leiknum í gær ýtir undir þær sögusagnir en um væri að ræða skammtíma samning út tímabilið en Palicka er orðaður við Fuchse Berlín næsta sumar. Simen Lyse hefur nú þegar yfirgefið Kolstad fyrr en áætlað var og er genginn í raðir Paris Saint Germain hálfu ári áður en áætlað var. Kolstad hefur fjárfest mikið á undanförnum tímabilum en fjárhagserfiðleikar hafa neytt félagið til að aðlaga stefnu sína. Sú staðreynd að leikmaður eins og Palicka sé þegar á leiðinni út undirstrikar alvarleika málsins. Staða Sigvalda Björns hefur verið óljós í janúar en hann var að minnsta kosti í leikmannahópi Kolstad í leiknum í gær og skoraði hann eitt mark í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.