Elmar framlengir hjá Nordhorn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elmar Erlingsson (Nordhorn Lingen)

Elmar Erlingsson hefur framlengt samningi sínum við þýska B-deildarliðið HSG Nordhorn-Lingen en félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni fyrr í dag. Elmar gerir eins árs samning við félagið sem gildir til sumarsins 2027.

Elmar gekk í raðir Nordhorn-Lingen frá uppeldisfélagi sínu ÍBV, þar síðasta sumar og er því á sínu öðru tímabili með félaginu í þýsku B-deildinni. Andri Erlingsson yngri bróðir Elmars gekk á dögunum í raðir Kristianstad í Svíþjóð og verður leikmaður Kristianstad frá og með næsta sumri.

,,Mér líður einfaldlega vel hjá félaginu og ég hef ekki fundið betra tækifæri fyrir mig neins staðar annars staðar," sagði Elmar í tilkynningunni en Elmar hefur skorað 53 mörk í leikjum HSG Nordhorn-Lingen á tímabilinu.

Nordhorn-Lingen er í 5.sæti B-deildarinnar aðeins þremur stigum á eftir Elbflorenz sem er á toppi deildarinnar. Nordhorn-Lingen leikur sinn fyrsta leik í deildinni á nýju ári gegn Grosswallstadt á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top