wAfturelding (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í kvöld mættust HK og Afturelding í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kórnum.
HK stelpur voru mun betri í fyrri hálfleikinn og tóku völdin strax í byrjun. Eftir korters leik var staðan 11-7 fyrir heimakonur. Áfram héldu þær forskotinu en náðu aldrei að slíta Aftureldingu almennilega frá sér. Í hálfleik var staðan 16-13.
Í seinni hálfleik gáfu HK stelpur enn meira í og náðu mest 8 marka forskoti. Afturelding voru aldrei líklegar til að koma tilbaka eftir það. Lokatölur leiksins urðu síðan 27-20. HK stelpur halda því áfram toppsætinu þegar nokkrar umferðir eru eftir.
Hjá HK voru Valgerður Þorsteins og Inga Fanney Hauksdóttir markahæstar með 6 mörk. Danijela Sara varði 12 skot.
Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 10 mörk. Áslaug Ýr Bragadóttir varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.