Tumi Steinn næst markahæstur – Sveinn úr leik í bikarnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tumi Steinn Rúnarsson (Harald Dostal / APA-PictureDesk / AFP)

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði sex mörk úr átta skotum í fjögurra marka sigri Alpla Hard gegn Hollarbrunn í austurrísku úrvalsdeildinni í kvöld, 33-29. Um var að ræða fyrsta leik Alpla Hard í austurrísku úrvalsdeildinni á þessu ári. 

Liðið er í 2.sæti með 14 stig, stigi á eftir Ferlach sem er á toppi deildarinnar en búnir að leika einum leik færri. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark úr tveimur skotum en þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson.

Á sama tíma tapaði Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambery Savoie í frönsku bikarkeppninni gegn Nimes 23-24 á heimavelli í kvöld. Nimes var 12-9 yfir í hálfleik en um var að ræða fyrstu viðureignina í 8-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top