
Birna María Unnarsdóttir (Sævar Jónasson)
Handboltahöllin sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans tók fyrir glæsilegt mark Birnu Maríu Unnarsdóttur leikmanns ÍBV í eins marks sigri ÍBV gegn Fram í 15.umferð Olís-deildar kvenna í síðustu viku. Birna María skoraði þar mark úr vinstra horninu úr mjög þröngu færi. ,,Við höfum sýnt nokkur mörk með henni í vetur. Hún virðist ekki skora nema bara stórkostleg mörk. Þetta er vonlaust færi," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar. Markið frá Birnu Maríu og umræðuna um markið í Handboltahöllinni má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.