Á deginum sínum eru þeir með besta lið deildarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Birkir Snær Steinsson (Sævar Jónasson)

Haukar mættu inn í Olís-deildina eftir langa pásu og fóru illa með topplið Vals í 16.umferð deildarinnar á fimmtudagskvöldið og gerðu sætaskipti í leiðinni. Haukar eru þar með á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir með jafn mörg stig og Valur og stigi meira en Afturelding sem tapaði gegn Fram.

Handkastið gerði upp 16.umferðina í hlaðvarpsþætti sínum og ræddi þar stöðuna á Haukum eftir sannfærandi sjö marka sigur liðsins á Val, 34-41 í N1-höllinni á Hlíðarenda.

,,Haukarnir á deginum sínum er besta liðið í deildinni finnst mér. Með þennan hóp og alla heila þá eru þeir besta lið deildarinnar. Þeir eiga það hinsvegar til að detta í einhvern algjöran skít eins og gegn Fram í lokaleiknum fyrir jól. Þar voru þeir 4-5 mörkum yfir en síðan fer allt í baklás. Það vantar stundum plan B og C hjá Gunna Magg. ef andstæðingurinn gerir eitthvað óvænt,” sagði Stymmi klippari og hélt áfram:

,,Miðað við meiðslin á ÍBV þá eiga Haukar að valta yfir ÍBV. Ef þeir mæta eins gíraðir og þeir mættu í leikinn gegn Val þá jarða þeir ÍBV. Benni Grétars og aðrir Haukamenn geta verið bjartir fyrir komandi vikum og mánuðum.”

Haukar eiga ÍBV, Stjörnuna og FH í næstu þremur leikjum. Þegar Stymmi klippari fór að skoða hvaða leiki topplið Hauka eiga eftir í Olís-deildinni þá vantaði ekki yfirlýsingarnar.

,,Haukar verða deildarmeistarar, þeir eiga ÍBV heima, Stjörnuna úti, FH heima, Þór, Selfoss og HK. Þetta er bara FH-leikurinn sem þeir gætu tapað stigum. Haukar verða deildarmeistarar, þú getur skrifað frétt um það. Coolbet, ég vil fá stuðul á þetta.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top