Adam hefur samið í Þýskalandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Adam Thorstensen (Sævar Jónasson)

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar í Olís-deild karla samið við þýska B-deildarfélags VFL Lubeck-Schwartau.

Adam fór á reynslu hjá félaginu fyrir áramót og bauðst samningur í kjölfarið. Nú hefur hann tekið ákvörðun og skrifað undir samning við félagið og gengur í raðir félagsins næsta sumar.

VFL Lubeck-Schwartau er í 7.sæti þýsku B-deildarinnar en liðið endaði í 12. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Adam sem er fæddur árið 2000 gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabilið 2020/2021 og er því á sínu sjötta tímabili hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top