Jónatan Magnússon KA/Þór (Eyjólfur Garðarsson)
KA/Þór vann þriggja marka sigur á Stjörnunni í síðustu umferð Olís-deildar kvenna. Það gerðu þær þrátt fyrir að hafa tapað boltanum 21 sinni í leiknum. Handboltahöllin fór yfir þetta í síðasta þætti sínum en Handboltahöllin er sýnd öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ,,Ég hef aldrei séð svona tölfræði en ná samt að skora 29 mörk og vinna. Þær eru með fleiri tapaða bolta en Stjarnan og Stjarnan nær að refsa nokkuð oft eftir þessa töpuðu bolta. Samt sem áður ná þær að vinna og taka tvö stig úr þessum leik," sagði Rakel Dögg Bragadóttir sérfræðingur í Handboltahöllinni. Stjarnan fær ÍR í heimsókn í Olís-deild kvenna í dag klukkan 17:00 en KA/Þór fær ÍBV í heimsókn á morgun klukkan 14:30 í síðustu viðureign umferðarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.