FH stelpur með sigur á Fjölni í Krikanum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Signý Pála Pálsdóttir (Emma Elísa Jónsdóttir)

Í dag mættust FH og Fjölnir í Krikanum í Grill 66 deild kvenna.

FH stelpur voru alltaf skrefi framar í fyrri hálfleik. Eftir korter var staðan 6-4 og þegar flautað var til loka fyrri hálfleiksins var staðan 12-9. Voru heimastúlkur einfaldlega mun ákveðnari og beittari.

Eftir rúmar 10 mínútur í seinni hálfleik voru FH stelpur komnar yfir í 16-10 og mættu Fjölnis stelpur einfaldlega ekki til leiks í byrjun seinni hálfleiks. Eftir þetta sá Fjölnir aldrei til sólar. FH stelpur héldu áfram að spila vel og sigruðu á öruggan og sannfærandi hátt. Lokatölur urðu 27-20 fyrir heimastúlkur í FH.

Hjá FH var Sonja Szöke með 15 bolta varða. Thelma Dögg Einarsdóttir setti 6 mörk.

Hjá Fjölni var Berglind Benediktsdóttir markahæst með 6 mörk. Signý Pála Pálsdóttir varði 10 skot í markinu.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top