Natasja í færeyska landsliðshópnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Natasja Hammer (Sævar Jónasson)

Claus Leth Mogensen og Simon Olsen landsliðsþjálfarar færeyska kvenna landsliðsins hafa valið sextán leikmann fyrir komandi verkefni færeyska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins. Færeyjar mætir Portúgal í tveimur leikjum 4. og 8. mars en liðin eru í sama riðli og Ísland í undankeppni Evrópumótsins.

Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild kvenna er í hópnum en hún hefur ekki verið í færeyska landsliðshópnum að undanförnu en hún gekk með barn á síðustu leiktíð áður en hún gekk í raðir Stjörnunnar í sumar.

Markvörðurinn, Annika Fríðheim Petersen leikmaður EH Aalborg í Danmörku er eini leikmaðurinn í færeyska landsliðshópnum sem hefur leikið á Íslandi en 11 af 16 leikmönnum í hópnum leika í Danmörku. Ein leikur í Noregi og síðan leikur Natasja Hammer á Íslandi.

Íslenska landsliðið leikur á sama tíma tvívegis gegn Svartfjallalandi í sama riðli en Svartfjallaland er á toppi riðilsins með fjögur stig eftir tvær umferðir. Færeyjar og Portúgal eru með tvö stig eftir nauma sigra gegn Íslandi en Ísland er án stiga og þurfa heldur betur að fara í stigasöfnun ætli þær sér að komast á Evrópumótið í lok árs.

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins hefur ekki tilkynnt landsliðshóp Íslands fyrir verkefnið.

Færeysi landsliðshópurinn er eftirfarandi:

Markverðir:
Rakul Wardum, Ringkøbing Håndbold
Annika Fríðheim Petersen, EH Aalborg

Aðrir leikmenn:
Elsa Egholm, Ajax København
Jana Mittún, Viborg HK
Maria Pálsdóttir Nólsoy, HH Elite
Marita Mortensen, HØJ
Lív Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København
Súna Krossteig Hansen, Skanderborg Håndbold
Natasja Hammer, Stjarnan
Brynhild Pálsdóttir, BK Ydun
Lív Sveinbjørnsdóttir Poulsen, VÍF
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe, H71
Rannvá Olsen, Ejstrup/Hærvejen
Pernille Brandenborg, Storhamar
Vár Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København
Bjarta Osberg Johansen, Kyndil

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top