Norðurlöndin: Nóg um að vera í öllum deildum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Klara Þorkelsdóttir - Ísland (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Það var spilað út um öll Norðurlöndin í dag en alls voru sjö Íslendingalið í eldlínunni í Noregi, Svíþjóð og Danmörku.

Kolstad jafnaði Elverum að stigum í Noregi með þægilegum heimasigri á Kristiansand, 38-28. Allir þrír Íslendingarnir komu við sögu í leiknum en Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum á meðan Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tvö mörk á úr tveimur skotum en gaf hinsvegar heilar níu stoðsendingar. Að lokum fékk Sigurjón Guðmundsson aðeins að spreyta sig í markinu en hann varði fimm skot af þeim ellefu sem hann fékk á sig eða 45% markvarsla.

Í Danmörku unnu Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro góðan útisigur á Grindsted, 28-33 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 16-16. Jóhannes Berg Andrason átti fínan leik fyrir gestina og klikkaði ekki á skoti og endaði á því að skora fjögur mörk úr fjórum skotum.

Í Svíþjóð voru bæði kvennadeildin og karladeildin í gangi en Sävehof hélt góðu gengi sínu í kvennadeildinni áfram með góðum útisigri á Skuru, 28-31. Elín Klara Þorkelsdóttir var næstbesti leikmaður gestanna samkvæmt einkunnagjöf Svíanna en hún skoraði sex mörk úr tíu skotum þar af eitt úr víti og gaf þrjár stoðsendingar.

Skara átti einnig leik í kvennadeildinni en þær töpuðu stórt á útivelli gegn Höörs HK, lokatölur 31-24 fyrir heimaliðið. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir gestina.

Karlamegin voru Sävehof einnig í eldlínunni en þeir mættu Hammarby í Stokkhólmi. Þar reyndust heimamenn of sterkir fyrir gestina og unnu góðan sigur, 33-26. Birgir Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr níu skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir gestina.

Að lokum mættust Kristianstad og Karlskrona í grannaslag á heimavelli Karlskrona. Þar reyndust gestirnir sterkari en þeir halda því toppsæti deildarinnar, lokatölur 29-33. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk úr níu skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir Karlskrona á meðan Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk úr fimm skotum, gaf sex stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki.

Úrslit dagsins:

Kolstad 38-28 Kristiansand

Grindsted 28-33 TTH Holstebro

Skuru 28-31 Sävehof

Höörs HK 31-24 Skara

Hammarby 33-26 Sävehof

Karlskrona 29-33 Kristianstad

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top