wHaukar - Alexandra Líf Arnarsdóttir (Sævar Jónasson)
Valur og Haukar mættust í 16.umferð Olís deildar kvenna í leik sem var að ljúka. Valur var með yfirtökin allan leikinn í dag og voru yfir 17-13 í hálfleik. Valur hélt áfram í síðari hálfleik og lönduðu að lokum sex marka sigri 29-23. Atkvæðamest í liði Vals var Þórey Anna Ásgeirsdóttir en hún skoraði tíu mörk í kvöld. Lovísa Thompsen skoraði níu og aðrar minna. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst gestanna með níu mörk. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði sex og aðrar minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.